Hálendi Íslands
Náttúruvernd og nýting
Forsíða
Stjórnsýsla á hálendinu

Svæðisskipulag

Samkvæmt nýjum skipulags- og byggingarlögum nr. 73/1997 er landið allt nú orðið skipulagsskylt, hálendið jafnt sem byggð. Lengst af hefur verið lítið skipulag og eftirlit með mannvirkjum á hálendinu. Þannig er talið að yfir 400 skálar og aðrar byggingar hafi verið reistar þar án þess að fyrir lægi skipulag eða sérstök leyfi skipulags- og byggingaryfirvalda.

Á vegum umhverfisráðuneytisins hófst árið 1994 vinna við gerð heildstæðs skipulags fyrir miðhálendi Íslands þegar sérstök samvinnunefnd var sett á fót. Nefndin lagði tillögu sína að svæðisskipulagi miðhálendisins fram til kynningar árið 1997.
Tillagan tekur til allra helstu umsvifa mannsins í landnotkun á svæðinu öllu til næstu tuttugu ára. Grunnhugmyndin er sú að deila miðhálendinu niður í stórar samfelldar landslagsheildir og belti eftir fyrirhuguðu umfangi mannvirkja og verndargildi. Annars vegar verði öll meiriháttar mannvirkjagerð, byggingar, vegir, línur og uppistöðulón í afmörkuðum beltum, en hins vegar verði skilgreind sem stærst og samfelldust svæði, verndarheildir, þar sem allri mannvirkjagerð verði haldið í lágmarki. Allir landsmenn gátu gert athugasemdir við skipulagstillöguna og bárust nefndinni fjölmargar athugasemdir sem hafðar voru til hliðsjónar við lokafrágang hennar. Nefndin hefur nú lokið störfum og er tillaga hennar til meðferðar hjá Skipulagsstofnun. Þá gera stjórnvöld ráð fyrir skipun sérstakrar nefndar sem fjalli áfram um skipulag miðhálendisins og fylgist með að samræmis sé gætt milli þess og aðalskipulagstillagna sveitarfélaga.

Náttúruvernd og nýtingForsíðaStjórnsýsla á hálendinu